1, 2 og Reykjavík er yfirskrift víðtæks samráðs Reykjavíkurborgar við íbúa í hverfum borgarinnar um viðhaldsverkefni og smærri nýframkvæmdir í borgarumhverfinu. Á ábendingavefnum gefst notendum kostur á að koma á framfæri eigin ábendingum með skýringum og fylgjast með stöðu – eigin ábendinga og annarra. Hægt er að færa ábendingar inn á hverfiskort, skoða yfirlit yfir ábendingar og styðja ábendingar annarra. Borgarbúum er frjálst að færa ábendingar um öll hverfi borgarinnar inn á síðuna. Tölfræði ábendinga eftir hverfum og málaflokkum verður aðgengileg á vefnum auk þess sem íbúar geta tekið afstöðu til ábendinga annarra.
Lesa meira
29.5.2008
Óskalistar frá tíu hverfum borgarinnar
Óskalistar frá tíu hverfum borgarinnar, með tíu ábendingum um það sem betur má fara í hverju hverfi, eru nú komnir til meðhöndlunar hjá Reykjavíkurborg. Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hefur haldið samráðsfundi í öllum hverfum Reykjavíkurborgar í tilefni af 1, 2 og Reykjavík en það er yfirskrift víðtæks samráðs við íbúa um viðhaldsverkefni og smærri nýframkvæmdir í borgarumhverfinu. Þátttaka á fundunum var mjög góð og mörgum skemmtilegum og þörfum ábendingum var komið á framfæri.
Lesa meira
Fjöldi álitsgjafa: 17697

Reykjavíkurborg - 411 1111 | Ráðhús Reykjavíkur í Tjarnargötu 11 | 101 Reykjavík | Sími 411 1000 | Bréfsími 5621799 | upplysingar@reykjavik.is | Admin