|
29.5.2008
Óskalistar frá tíu hverfum borgarinnar
|
|
Óskalistar frá tíu hverfum borgarinnar, með tíu ábendingum um það sem betur má fara í hverju hverfi, eru nú komnir til meðhöndlunar hjá Reykjavíkurborg.
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hefur haldið samráðsfundi í öllum hverfum Reykjavíkurborgar í tilefni af 1, 2 og Reykjavík en það er yfirskrift víðtæks samráðs við íbúa um viðhaldsverkefni og smærri nýframkvæmdir í borgarumhverfinu. Þátttaka á fundunum var mjög góð og mörgum skemmtilegum og þörfum ábendingum var komið á framfæri.
Ábendingarnar tíu úr hverju hverfi eru settar saman úr; ábendingum af ábendingavefnum, ábendingum sem stýrihópar í hverju hverfi söfnuðu saman frá íbúum eftir ýmsum leiðum og ábendingum sem komu fram á samráðsfundi borgarstjóra með íbúum. Sérfræðingar hjá Reykjavíkurborg fara nú yfir ábendingarnar og skoða hvað er framkvæmanlegt. Niðurstöðurnar verða sendar íbúum í bæklingi eða með öðrum hætti í sumar.
Nú þegar hefur mörgum ábendingum verið svarað og nokkrar hafa þegar verið framkvæmdar.
|
|
|