20.2.2008
Velkomin á ábendingavef 1, 2 og Reykjavík
1, 2 og Reykjavík er yfirskrift víðtæks samráðs Reykjavíkurborgar við íbúa í hverfum borgarinnar um viðhaldsverkefni og smærri nýframkvæmdir í borgarumhverfinu.

Á ábendingavefnum gefst notendum kostur á að koma á framfæri eigin ábendingum með skýringum og fylgjast með stöðu – eigin ábendinga og annarra. Hægt er að færa ábendingar inn á hverfiskort, skoða yfirlit yfir ábendingar og styðja ábendingar annarra. Borgarbúum er frjálst að færa ábendingar um öll hverfi borgarinnar inn á síðuna. Tölfræði ábendinga eftir hverfum og málaflokkum verður aðgengileg á vefnum auk þess sem íbúar geta tekið afstöðu til ábendinga annarra.

Ekki er eingöngu leitað eftir ábendingum á vefnum því stýrihópur borgarinnar í hverju hverfi leitar fjölbreyttra leiða til að virkja börn, unglinga og fullorðna til að setja fram hugmyndir og ábendingar um viðhaldsverkefni og nýframkvæmdir í viðkomandi hverfi.

Ábendingum íbúa um nauðsynlegt viðhald verður veitt til viðkomandi hverfastöðvar Framkvæmda- eða Umhverfis- og samgöngusviðs. Hugmyndir um nýframkvæmdir og stærri viðhaldsverkefni verða kynntar og ræddar á opnum samráðsfundum með borgarstjóra á tímabilinu frá 12. apríl til 3. maí. Niðurstöður verða sendar íbúum í bæklingi eða með öðrum hætti með vorinu.

Reykjavíkurborg hvetur borgarbúa og alla landsmenn til að nýta sér vettvang 1,2 og Reykjavík til að stuðla að fegurra borgarumhverfi og blómstrandi mannlífi í öllum hverfum borgarinnar.

Reykjavíkurborg
4 11 11 11
Fjöldi álitsgjafa: 17704

Reykjavíkurborg - 411 1111 | Ráðhús Reykjavíkur í Tjarnargötu 11 | 101 Reykjavík | Sími 411 1000 | Bréfsími 5621799 | upplysingar@reykjavik.is | Admin